Sanngjarnt frá fyrsta degi
Teymi kostar 3.900 kr. á aðgang á mánuði, án VSK. Svardrög og samantektir fylgja. Sjálfvirk svörun er valkvæð viðbót. Þrír aðgangar með svardrögum kosta því 11.700 kr. á mánuði, án VSK.
Teymi
Fyrir vaxandi þjónustuteymi
- 3.900 kr. fyrir hvern aðgang - bættu við eftir þörfum
- Ótakmörkuð samtöl
- Allar rásir: netspjall, póstur, Instagram, Messenger, WhatsApp
- Kenni rafræn skilríki í netspjalli (valfrjálst, aukalega skv. verðskrá kenni.is)
- Svardrög og samantektir innifalin
- Sjálfvirk svörun er valkvæð og kostar aukalega
- Tengingar: WooCommerce, Shopify, HubSpot, Salesforce, Payday
- Sjálfvirkni, SLA, ánægjukannanir og sjálfvirk úthlutun
- Mælaborð og skýrslur
- Forrit fyrir tölvu og síma: macOS, Windows, iOS og Android
- Zapier, Make, n8n og vefkrókar
- Ekkert Spjallbox-merki
- 1 spjallgluggi / vörumerki
Rekstur
Fyrir stærri rekstur með kröfur
- Allt í Teymi
- Sérsniðið merki og eigið lén (sérmerking)
- Allt að 3 vörumerki (spjallgluggar) á einum reikningi
- Hlutverk, aðgangsstýring og atvikaskrá
- Forgangsþjónusta
Stórrekstur
Fyrir stofnanir og stórnotendur
- Allt í Rekstri
- Ótakmörkuð vörumerki (spjallgluggar)
- Einföld innskráning (SSO) og sérlausnir
- SLA-samningur
- Sérstakur tengiliður
- Gagnaflutningur og vottanir
Svardrög og samantektir fylgja áskrift. Sjálfvirk svörun er valkvæð og kostar aukalega.
Öll verð eru án VSK
Kenni rafræn skilríki eru valfrjáls viðbót og ekki innifalin í áætlununum — kostnaður fer eftir verðskrá kenni.is.
Leitar þú að AI-símaþjóni sem svarar innhringingum? Það er aukalega, sér-samið áskrift utan þessara áætlana — sjá Símaþjónn.
Reiknivélin
Hvað kostar það fyrir ykkur?
Veldu áætlun og gervigreind — sæti aðeins á Teymi og Rekstri. Heildarkostnaðurinn birtist í rauntíma.
Mánaðarverð
11.700 kr
án VSK
- Áskrift · Teymi · 3
- 11.700 kr
- Svardrög og samantektir
- Innifalið
- Sjálfvirk svörun
- 0 kr
Kenni, símaþjónn og aðrar valkvæðar viðbætur eru ekki innifaldar hér.
Prófa frítt í 14 dagaGervigreindin
Þú velur sjálfvirknina.
Svardrög og samantektir fylgja öllum áskriftum — pakkarnir snúa eingöngu að sjálfvirkri svörun.
Engin sjálfvirk lausn
0 kr
Aðeins svardrög og samantektir
Greitt eftir notkun
0 kr
39 kr. á samtal með sjálfvirku svari
Pakki · 200
5.900 kr / mán
29,5 kr. að meðaltali ef öll 200 samtöl nýtast
200 samtöl innifalin
Pakki · 1.000
24.900 kr / mán
24,9 kr. að meðaltali ef öll 1.000 samtöl nýtast
1.000 samtöl innifalin
Spurt og svarað
Um verðið og skilmálana.
01Hvernig er gervigreindin verðlögð?
Svardrög, samantektir og Bæta svar fylgja virkri áskrift og prufu. Sjálfvirk svörun er valkvæð: 39 kr. á samtal eftir notkun, eða fastur mánaðarpakki. Samtal telst þegar sjálfvirkt svar er sent; það er ekki staðfesting á því að málið sé leyst. Mánaðarpakkar stöðva ný sjálfvirk samtöl þegar innifalið magn klárast.
02Get ég skipt um áætlun hvenær sem er?
Á virkri vefáskrift geturðu breytt leið, aðgöngum og AI-pakka í Reikningum. Aðgangurinn breytist strax; næsta reglulega gjaldfærsla miðast við uppfærða áskrift og endurnýjunardagurinn helst. Áskrift keyptri í App Store er breytt þar.
03Getið þið sett Spjallbox upp fyrir mig?
Já. Hafðu samband ef þú vilt kaupa áskrift og láta okkur sjá um uppsetninguna. Við setjum Spjallbox á vefinn þinn án aukakostnaðar — þú þarft hvorki að kunna að forrita né sjá um uppsetninguna.
04Þarf ég greiðslukort til að byrja?
Ný fyrirtæki fá 14 daga Teymi-prufu með einum aðgangi. Svardrög og samantektir fylgja; sjálfvirk svörun er óvirk í upphafi. Ekkert greiðslukort þarf til að byrja. Án korts færist aðgangurinn í takmarkaða leið við lok prufu. Ef þú virkjar greiðandi áskrift gilda greiðsluskilmálar sem þú samþykkir við kaup.
05Hvað felst í white-label og sérsniðnu léni?
Á Rekstur-áætlun og hærra geturðu fjarlægt alla Spjallbox-merkingu og stillt inn eigið lógó, nafn og liti. Þú getur einnig notað sérsniðið lén (t.d. inbox.fyrirtaeki.is) sem vísar á innhólfið þitt. Viðskiptavinir þínir sjá aðeins þitt merki — ekkert sem bendir til Spjallbox.
06Hvar eru gögnin geymd?
Öll gögn eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins og meðhöndluð í samræmi við GDPR.
07Kostar Kenni-auðkenning aukalega?
Já. Kenni rafræn skilríki eru valfrjáls viðbót við netspjallið — þú kveikir á þeim ef þú vilt staðfesta kennitölu, nafn og símanúmer viðskiptavina. Kostnaðurinn er ekki innifalinn í áætlunum Spjallbox og fer eftir gildandi verðskrá kenni.is.
08Er til AI-símaþjónn sem svarar innhringingum?
Já — Símaþjónn er aukalega áskrift utan þessara áætlana, með samið verð per fyrirtæki. Sjá /simathjonn fyrir nánari upplýsingar og hafa samband um verðtilboð.
09Hvað eru mörg vörumerki og hve marga spjallglugga fæ ég?
Mörg vörumerki þýðir að þú keyrir marga aðskilda spjallglugga — hvern með sínu útliti, léni og þekkingargrunni — undir einum Spjallbox-reikningi. Sóló og Teymi fá einn spjallglugga, Rekstur allt að þremur og Stórrekstur ótakmarkað.