Fyrir fyrirtæki sem vilja einfalda samskipti

Gervigreindin semur. Þú átt lokaorðið.

Spjallbox undirbýr svardrög út frá upplýsingum fyrirtækisins. Lestu yfir, lagaðu ef þarf og sendu þegar svarið er tilbúið.

Ekkert greiðslukort · Svardrög fylgja áskrift · Engin binding

Outlook

Netspjall, póstur og samfélagsmiðlar

Sigríður Jóns

Fyrirspurn um skil

Hæ, má ég skila peysu sem ég keypti fyrir tveimur vikum?

Svardrög

Hæ Sigríður! Já, þú hefur 30 daga til að skila ónotaðri vöru í upprunalegum umbúðum. Mundu að taka kvittunina með.

SendaBreyta
Byggt á skilmálum ykkar

Svardrög

Hraðari svör. Sama gæði.

Byggt á ykkar upplýsingum

Svardrögin byggja á vefnum, skilmálum og þekkingargrunni fyrirtækisins, ekki á getgátum.

Á góðri íslensku

Spjallbox skrifar eðlilega íslensku og svarar á því tungumáli sem viðskiptavinurinn skrifar á.

Þú stjórnar því sem er sent

Ekkert fer út nema starfsmaður samþykki. Sjálfvirk svörun er aðeins til ef þú kveikir á henni.

Prófaðu sjálf

Svona virka svardrögin.

Lagaðu textann og samþykktu svarið. Ekkert er sent til viðskiptavinar í þessu dæmi.

Sýnidæmi með prófgögnum

Frá spurningu að yfirförnu svari

Viðskiptavinur: Hversu langan tíma hef ég til að skila ónotaðri vöru?

Prófheimild: Ónotaðri vöru í upprunalegum umbúðum má skila innan 30 daga með kvittun.

Þetta dæmi er aðeins hér á síðunni og sendir engin skilaboð.

Komið í gang

Byrjaðu á einni rás. Í dag.

Engin flókin innleiðing. Þú getur svarað fyrsta erindinu sama dag og þú stofnar aðgang.

  1. 01

    Stofnaðu aðgang

    Bættu við upplýsingum fyrirtækisins á nokkrum mínútum.

  2. 02

    Tengdu fyrstu rásina

    Byrjaðu á pósti eða netspjalli og prófaðu fyrsta svardragið.

  3. 03

    Svaraðu fyrsta erindinu

    Sendu prufuerindi og bættu við fleiri rásum þegar þér hentar.

Komið í gang á mínútum Frí uppsetning með áskrift Gögn hýst í Evrópu

Verð

Einfalt verð. Engin binding.

Teymi kostar 3.900 kr fyrir hvern aðgang á mánuði. Þrír aðgangar: 11.700 kr á mánuði án VSK. Svardrög og samantektir fylgja. Sjálfvirk svörun og aðrar valkvæðar viðbætur kosta aukalega.

Hvaða leið hentar?
Hver sendir svörin?

Mánaðarverð

11.700 kr

án VSK

Áskrift · Teymi · 3
11.700 kr
Svardrög og samantektir
Innifalið
Sjálfvirk svörun
0 kr

Kenni, símaþjónn og aðrar valkvæðar viðbætur eru ekki innifaldar hér.

Prófa frítt í 14 daga

Sjá alla verðskrána og Sóló fyrir einn aðgang

Spurt og svarað

Gott að vita áður en þú byrjar.

Finnurðu ekki svarið? Við svörum fljótt.

Sendir gervigreindin svör sjálf?
Svardrög eru fyrir starfsfólkið til að yfirfara og senda. Sjálfvirk svörun er sérstakur valkostur sem þarf að virkja og er verðlagður sérstaklega.
Hvað fæ ég í prufunni og hvað gerist eftir hana?
Ný fyrirtæki fá 14 daga Teymi-prufu með einum aðgangi. Svardrög og samantektir fylgja; sjálfvirk svörun er óvirk í upphafi. Ekkert greiðslukort þarf til að byrja. Án korts færist aðgangurinn í takmarkaða leið við lok prufu. Ef þú virkjar greiðandi áskrift gilda greiðsluskilmálar sem þú samþykkir við kaup.
Get ég hætt hvenær sem er?
Já. Engin binding er á áskriftinni og þú getur sagt henni upp hvenær sem er í stillingum.
Hvar eru gögnin geymd?
Gögnin eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins og unnin í samræmi við GDPR. Spjallbox er rekið af Novamedia ehf. á Íslandi.
Getið þið sett þetta upp fyrir okkur?
Já. Uppsetning er frí með áskrift. Við tengjum rásirnar og setjum spjallgluggann upp á vefnum ykkar.
Svardrög á íslensku — Spjallbox