Tilbúið á 30 mín.
Þú setur Spjallbox upp í fjórum skýrum skrefum. Eftir það sér kerfið um að safna erindum og undirbúa svörin — þú lest yfir og sendir.
- 14 daga prufa
- Ekkert greiðslukort
- Enginn uppsetningarfundur
Hluti 1 · Uppsetning
Fjögur skref. Um 30 mínútur.
Byrjaðu á netspjallinu einu og sér eða tengdu tölvupóstinn strax. Þú bætir öðrum rásum við þegar þér hentar.
Samtals um 30 mínútur
- 011 mín.
Stofnaðu aðgang
Nafn, netfang og lykilorð. Þú færð strax aðgang að innhólfinu og 14 daga ókeypis prufu.
- 025 mín.
Settu spjallið á vefinn
Límdu eina línu af kóða á vefinn. Einnig er hægt að nota WordPress, Shopify, Wix eða Google Tag Manager.
Sjá uppsetningarleiðir - 0315 mín.
Kenndu Spjallbox
Sláðu inn vefslóðina þína eða bættu við algengum spurningum. Þá verða svardrögin byggð á upplýsingum frá fyrirtækinu.
- 043 mín.
Sæktu appið
Fáðu tilkynningar og svaraðu úr símanum eða tölvunni. Allt er samstillt við vefinn í rauntíma.
Sækja appið
Svona lítur kóðabúturinn út. Rétti veflykillinn birtist í þínum aðgangi.
<script
src="https://www.spjallbox.is/embed.js"
data-public-key="pk_••••••••"
async
></script>Hluti 2 · Dagleg vinna
Erindi inn. Svar út.
Sama ferli gildir fyrir allar rásir. Spjallbox safnar saman samhenginu, gervigreindin undirbýr svarið og þú hefur lokaorðið.
- 01
Erindið kemur inn
Netspjall, tölvupóstur og samfélagsmiðlar lenda í sama innhólfinu — með allri samskiptasögunni.
- 02
Svardrögin bíða
Gervigreindin finnur viðeigandi upplýsingar og semur drög á íslensku um leið og erindið berst.
- 03
Þú lest yfir og sendir
Lagaðu orðalagið ef þarf og sendu með einum smelli. Ekkert fer út án samþykkis nema þú veljir það sérstaklega.
Þú stjórnar alltaf því sem fer út.
Gervigreindin semur drög en sendir ekki fyrir þína hönd. Þú getur valið að kveikja á sjálfvirkum svörum síðar.
Sama innhólf, alls staðar
iOS, Android, macOS og Windows — með tilkynningum og samstillingu í rauntíma.
Áður en þú byrjar
Einföld svör. Engin flækja.
01Þarf ég forritara til að setja þetta upp?+
Nei. Flest fyrirtæki setja netspjallið upp með einni línu af kóða, WordPress-viðbót eða Google Tag Manager. Við sýnum nákvæmlega hvað á að afrita og hvert það fer.
02Get ég byrjað bara með netspjall eða tölvupóst?+
Já. Byrjaðu á þeirri rás sem skiptir mestu máli. Þú getur bætt við tölvupósti, samfélagsmiðlum og öðrum tengingum síðar án þess að byrja upp á nýtt.
03Svarar gervigreindin sjálfkrafa?+
Ekki nema þú ákveðir það. Sjálfgefið semur hún svardrög sem manneskja les yfir og samþykkir áður en þau eru send.
Prófaðu í dag
30 mínútur. Ekkert kort.
Stofnaðu aðgang og sjáðu hversu fljótt fyrsta samþykkta svarið er tilbúið.