Þjónustan
Spjallbox veitir stafrænt þjónustuborð og live chat. Þjónustan er rekin af Novamedia ehf. (kt. 540606-2260).
Aðgangur og ábyrgð notanda
- Þú berð ábyrgð á aðgangsupplýsingum og virkni innan reikningsins.
- Þú ábyrgist að hafa heimild til að vinna þau gögn sem þú setur inn í kerfið.
- Óheimilt er að nota þjónustuna til ólöglegrar eða skaðlegrar starfsemi.
Áskrift og greiðslur
Ný fyrirtæki fá 14 daga Teymi-prufu með einum aðgangi. Svardrög og samantektir fylgja; sjálfvirk svörun er óvirk í upphafi. Ekkert greiðslukort þarf til að byrja. Án korts færist aðgangurinn í takmarkaða leið við lok prufu. Ef þú virkjar greiðandi áskrift gilda greiðsluskilmálar sem þú samþykkir við kaup.
Svardrög og samantektir fylgja áskrift. Sjálfvirkt samtal telst þegar sjálfvirkt svar er sent, ekki þegar lausn hefur verið staðfest. AI-pakkar stoppa ný sjálfvirk samtöl við innifalið magn; ónotað magn flyst ekki áfram. Sjá verðskrá.
Áskrift er greidd mánaðarlega samkvæmt valinni áætlun og fjölda sæta, auk valkvæðrar sjálfvirkrar svörunar. Verð eru birt án VSK. Hægt er að breyta eða segja upp áskrift hvenær sem er. Aðgangur breytist strax; næsta reglulega gjaldfærsla miðast við uppfærða áskrift. Uppsögn tekur gildi við lok tímabils. Rafræn skilríki (Kenni / Auðkenni) eru valfrjáls viðbót og ekki innifalin í áskriftinni — kostnaður vegna notkunar þeirra fer eftir gildandi verðskrá kenni.is og er á ábyrgð þess fyrirtækis sem kveikir á virkninni.
Gögn viðskiptavinar
Þú heldur eignarrétti á þínum gögnum. Við vinnum þau einungis til að veita þjónustuna í samræmi við persónuverndarstefnu okkar og vinnslusamning. Kjósir þú að kveikja á rafrænum skilríkjum (Kenni / Auðkenni) berð þú ábyrgð á lögmætri vinnslu þeirra kennitalna sem safnast við auðkenningu viðskiptavina.
Aðgengi og rekstur
Við leggjum okkur fram um hátt aðgengi þjónustunnar en getum ekki tryggt samfellt aðgengi án rofs. Áætlað viðhald er tilkynnt fyrirfram eftir því sem unnt er.
Ábyrgðartakmörkun
Þjónustan er veitt „eins og hún er“. Að því marki sem lög leyfa takmarkast bótaábyrgð Novamedia ehf. við þá fjárhæð sem greidd var fyrir þjónustuna á næstliðnum 12 mánuðum.
Lög og varnarþing
Skilmálarnir lúta íslenskum lögum og ágreiningur sem ekki verður leystur með samkomulagi heyrir undir Héraðsdóm Reykjavíkur.
Hafa samband
Spurningar um skilmála má senda á spjallbox@spjallbox.is.