Eiginleikar

Allt þjónustuferlið. Í einu kerfi.

Innhólf, gervigreind, netspjall, sjálfvirkni og viðskiptavinayfirlit sem vinna saman. Allt hér fylgir áskriftinni nema Símaþjónninn, sem er valkvæð viðbót.

01Innhólfið

Allar rásir. Eitt teymi.

Tölvupóstur, netspjall, Instagram, Messenger, WhatsApp og eyðublöð renna í eitt sameiginlegt innhólf — með úthlutun, einkanótum og rauntíma viðveru svo enginn svarar sama erindinu tvisvar.

  • Úthlutun, einkanótur og @-tilvísanir
  • Árekstravörn — sérðu hver er að svara
  • Tölvupóstþræðing með eigin léni og mörgum pósthólfum
Innhólf · allt teymiðSÞJ
  • Anna ÓlafsdóttirHvenær fæ ég pöntun 4821?núna
  • kristin.joEr þetta til í stærð M?2m
  • Sigríður BjörnsdóttirGet ég breytt heimilisfangi?9m
Einkanóta@Jón — geturðu tékkað á lagerstöðunni?
Úthlutað á Söru
Sýnidæmi með prófgögnum

02Gervigreindin

Drögin bíða. Þú ræður.

Gervigreindin útbýr svardrög á íslensku með þinn þekkingargrunn til hliðsjónar. Yfirfarðu efnið og bættu orðalagið áður en þú sendir. Sjálfvirk svörun er valkvæð og óvirk í upphafi.

  • Svardrög með þínar heimildir til hliðsjónar
  • „Bæta svar“: styttra, vinalegra, formlegra eða þýtt
  • Samantektir á löngum málum og sjálfvirk lausn — ef þú leyfir
  • Skilur og svarar á tungumáli viðskiptavinarins — íslensku, ensku og fleiru
Svardrög gervigreindar

Sæl Anna! Pöntun 4821 fór í dreifingu í dag og kemur til þín á 1–2 virkum dögum. Þú færð rakningarnúmer um leið og hún er á leiðinni.

Heimildir:SendingarSkilaskilmálar
StyttraVinalegraFormlegraÞýða
Samþykkja og senda Laga
Tilbúið til yfirferðar
Sýnidæmi með prófgögnum

03Netspjall og Kenni

Spjall sem veit hver þú ert.

Léttur spjallgluggi sem fer á vefinn með einni línu af kóða — þar sem viðskiptavinir geta auðkennt sig með rafrænum skilríkjum í gegnum Kenni áður en samtalið hefst.

  • Staðfest kennitala, nafn og símanúmer
  • Skrifvísar, viðvera og sérsniðið útlit
  • Gestir í rauntíma — sjáðu hverjir eru á vefnum
  • Á íslensku og ensku úr kassanum — bættu við þínu eigin tungumáli
  • Kenni-auðkenning er valfrjáls, verðlögð sér skv. kenni.is
F

Fyrirtækið þitt

Svörum á mínútum

IS/EN

Auðkennd með Kenni
Anna Ólafsdóttir · kt. 120589-••••

Hæ! Ég þarf að breyta greiðslumátanum á áskriftinni minni.
Sæl Anna — ekkert mál. Þar sem þú ert auðkennd get ég opnað áskriftina þína strax.
</>Ein lína af kóða
Sýnidæmi með prófgögnum

04Sjálfvirknin

Kerfið vaktar. Þú sefur.

Reglur beina, merkja og forgangsraða erindum sjálfkrafa. SLA-markmið sem kerfið fylgist með, round-robin úthlutun á teymið og ánægjukönnun send um leið og máli er lokað.

  • Reglur: beina, merkja, forgangsraða, svara
  • SLA-vöktun með viðvörunum áður en markmið bresta
  • CSAT-ánægjukannanir að loknu máli
Regla · virk
Efni inniheldur„reikningur“Forgangur: Hár fjármál→ Bókhald
SLA · fyrsta svar innan 15 mín08:12 eftir
CSAT eftir lokun máls4,8
Keyrð 128× í mánuðinum
Sýnidæmi með prófgögnum

05Yfirsýnin

Tölurnar á hreinu.

Rauntíma mælaborð yfir svartíma, lausnarhlutfall, álag eftir rásum og frammistöðu hvers fulltrúa — auk vefgreiningar og gesta á vefnum. Flyttu út í CSV þegar þú þarft dýpri greiningu.

  • Svartími, lausnarhlutfall og álag í rauntíma
  • Vefgreining — heimsóknir, síður og uppruni umferðar
  • Gestir á vefnum í beinni, frammistaða eftir fulltrúa
  • CSV-útflutningur fyrir dýpri greiningu
Leyst mál · vikan+18%
M
Þ
M
F
F
L
S

Meðalsvartími

2,4 mín

Lausnarhlutfall

63%

Ánægja

4,8/5

Í rauntíma
Sýnidæmi með prófgögnum

06Þitt merki

Þitt nafn. Okkar vél.

Á Rekstur-áætlun og hærra fjarlægirðu allt Spjallbox-merki: eigið lógó, eigin litir og sérsniðið lén eins og inbox.fyrirtaeki.is. Viðskiptavinir þínir sjá aðeins þitt vörumerki.

  • Eigið lógó, nafn og litur alls staðar
  • Sérsniðið lén með sjálfvirkri DNS-staðfestingu
  • Spjallgluggi, gátt og póstar — allt undir þínu merki
  • Multi-brand: allt að 3 aðskilin vörumerki á Rekstri, ótakmarkað á Stórrekstri
Sérmerking
LógóÞITT MERKI
Litur
Léninbox.fyrirtaeki.is

Viðskiptavinir þínir sjá aðeins þitt merki — í spjallglugganum, gáttinni og hverjum einasta tölvupósti.

Allt að 3 vörumerki
Sýnidæmi með prófgögnum

07Viðskiptavinurinn

Allt um viðskiptavininn. Í einum glugga.

Allt um viðskiptavininn fylgir málinu. Þú sérð fyrirtækið, fyrri samskipti, opin mál, verkefni og stöðuna í dk við hlið hvers máls. Áhugasöm samtöl verða tækifæri í Spjallbox CRM, sem fylgir Rekstri, og viðskiptavinir fara líka sem leads í HubSpot eða Salesforce.

  • Fyrirtæki með kennitölu — tengiliðir tengjast sjálfkrafa eftir léni
  • Sölupípa, tilboð og söluskýrslur í Spjallbox CRM (sjá /sala)
  • Ein tímalína: skilaboð, símtöl, athugasemdir og verkefni
  • Verkefni með skiladögum og síðan „Mín verkefni“
  • Leads í HubSpot eða Salesforce — handvirkt eða með sjálfvirknireglu
  • Staða, lánamörk og ógreiddir reikningar úr dk
  • Mínar síður: viðskiptavinir svara og senda inn ný erindi
A

Anna Ólafsdóttir Kenni

Fyrirtækið ehf. · 4 tengiliðir

12

Samskipti

1

Opin mál

2

Verkefni

dk · viðskiptamaðurStaða 184.500 kr.1 gjaldfallinn
Hringja til baka vegna tilboðsÍ dag 14:00
Senda í HubSpot
Ekkert flipaflakk
Sýnidæmi með prófgögnum

Og allt hitt

Smáatriðin sem muna öllu.

Mörg tungumál

Íslenska og enska innbyggð — bættu við fleiri tungumálum og gervigreindin þýðir sjálfkrafa.

Svarsniðmát

Vistuð svör og aðgerðir sem teymið deilir — heilt svar á einum flýtilykli.

Öflug leit

Leitaðu í öllum málum, tengiliðum og þekkingargreinum á augabragði.

Sérsniðnar síur

Vistaðar síur eins og „Mín mál“, „VIP“ og „Bíður svars“ fyrir allt teymið.

Sameining mála

Tvö erindi um sama málið verða eitt — sagan fylgir með.

Verkefni og eftirfylgni

Verkefni á málum og tengiliðum, með skiladögum og áminningum — og öll þín á einni síðu.

Mínar síður

Örugg gátt undir þínu merki þar sem viðskiptavinir fylgjast með málum, svara og senda inn ný erindi.

Tengiliðir og tímalína

Skilaboð, símtöl, athugasemdir og verkefni hvers viðskiptavinar á einni tímalínu.

Mörg pósthólf og eigið lén

sala@, hjalp@, reikningar@ — öll með þræðingu og eigin undirskrift.

Vinnutímar

Sjálfvirk svör utan opnunartíma með væntanlegum svartíma.

Hlutverk og atvikaskrá

Owner, admin, agent og viewer — hver aðgerð rekjanleg í audit-log.

Push-tilkynningar

Vef-push í tölvu og síma svo ekkert mál bíður of lengi.

App í síma og tölvu

iOS, Android, Mac og Windows — ásamt vefappi (PWA) fyrir þá sem vilja það.

Vefgreining

Heimsóknir, síður og uppruni umferðar — aðskilið frá þjónustuskýrslunum.

GDPR-tól

Útflutningur og eyðing gagna viðskiptavinar á einum stað.

Opin hjálparmiðstöð

Birtu þekkingargrunninn sem hjálparmiðstöð fyrir viðskiptavini.

Round-robin úthlutun

Ný mál dreifast jafnt á teymið — eða eftir þínum reglum.

Frammistaða fulltrúa

Svartími og afköst hvers fulltrúa, samanburður milli tímabila.

Símaþjónn (AI)

Sami heilinn svarar innhringingum — valkvæð viðbótaráskrift, sett upp með okkur.

Eiginleikar — Spjallbox